Kreppa og allt ţađ
10. september 2008 klukkan 23:29
Þessa dagana er skynsemin allsráðandi, og ekki aðeins í skynsemisklúbbnum heldur heyrir maður af því að ráðsettar fjölskyldur séu að halda að sér buddunni, að lífrænn matur og líkamsræktarstöðvar séu ekki lengur í tísku. Í stað þess að fara á grænan kost í hádeginu verður subway að duga. Og í stað þess að kaupa kort í Laugar á tilboði á 55.000 krónur borgar sig að fara á hjóli í vinnuna og brenna þannig hitaeiningum, en ekki peningum, því í leiðinni sparar maður jú bensín. Ég held ég hafi farið tvisvar út fyrir hverfið (fyrir utan vinnuna sem er nú ekki langt í burtu) á síðustu tveimur vikum. Aðeins sökum bensínkostnaðar. Ég hjólaði til vinnu eina vikuna þar til hjólinu mínu var stolið og ég sá að ekki var hægt að fá það bætt. Labbaði meira að segja tvisvar held ég. Ég hef líka komist að því að það er ágætt að sleppa því bara að borða nema þegar manni er boðið eitthvað, eða að tilefni sé til, svosem hittingur í vinahópnum og annað. Þannig sparar maður aldeilis. Jæja, nóg um væl og krepputal. Ég myndi sennilega ekki halda svona að mér nema því ég þykist vera að spara fyrir Indlandsferð. Sem verður að öllum líkindum farin fljótlega. Það heldur mér gangandi. Vinnan er leiðinleg...mér var boðin önnur, er að vinna í því. Kemur allt í ljós. Mig langar að blómstra!!!

