egyptaland og fleira
29. júlí 2008 klukkan 22:30
jæja margt hefur breystst síðan síðast er búin að fara til Egyptalands og láta hafa af mér alltof mikið af peningum en í staðin fékk ég nú að prófa að kafa í fyrsta sinn, fór til Ísrael nánar tiltekið Jerúsalem þar sem ég skoðaði fæðingarstað Jesú og einnig staðinn þar sem hann var krossfestur, á leiðinni stoppuðum við líka í dauða hafinu þar sem við flutum með tærnar uppí loftið og sönkuðum að okkur salti. Í Egyptalandi fórum við svo í eyðimörkina drukkum te í tjöldum hjá fólki sem býr í eyðimörkinni, við skoðuðum líka pýramídana, lágum í sólbaði, skoðuðum egypska safnið, lágum aðeins meira í sólbaði og margt margt fleira...
núna er hinsvegar hversdagsleikinn tekinn við og ég byrjuð að vinna eins og mófó...til að borga alla reikningana eftir að hafa verið göbbuð allverulega af hinum og þessum eguptum ;)
svo mæti ég í bæinn í endan ágúst og byrja aftur í skólanum það verður kærkomið frí eftir alla þessa vinnu ;)

Já
14. júlí 2008 klukkan 12:11
Skynsemisklúbburinn er skynsamur að vanda og nýtur góðs félagsskapar og þess að vera í sumarfríi, þrátt fyrir að það rigni örlítið. Ég hef mest lítið fram að færa en hér má þó finna nokkrar myndir af skynseminni og vinum í góðu glensi.
![]() |
| sumarbland |