Beta, 24
29. mars 2008 klukkan 12:39

Í dag er heilladagurinn hennar Betu, hún er 24 ára í dag og því fyrst í genginu til að vera næstum 25. Það sést ekki á henni. Ég er auðvitað búin að setja hana sem afmælisbarn inn á mína góðu síðu en aldrei hægt að gera of mikið fyrir góðan vin og því fær hún líka smá props hérna. Eigðu góðan dag elsku Beta mín, ég vildi að ég gæti fagnað honum með þér og gefið þér afmælisknús. Love you!!
p.s. nokkrar berlínar myndir , ef þið viljið kíkja.
er sumariđ komiđ??
27. mars 2008 klukkan 11:39
hversdagurinn er tekinn við af ofáti og of miklum svefni...get ekki sagt að það hafi verið auðvelt að vakna aftur klukkan 7 til þess að fara út í kaldann bílinn og keyra eitthvert upp í sveit, þá kýs ég nú frekar ofátið og svefnin, en ég lít á björtu hliðarnar og hugsa til þess að það er alveg að koma sumar er farin að telja niður dagana aðeins 28 dagar í sumardaginn fyrsta og eftir það verður það bara eintómir ísbíltúrar hangs niðri á Austurvelli ef til vill einhverjar útlandaferðir, Hildur á klakanum, útileigur, sundferðir og ég veit ekki hvað og hvað...
jæja er farin að bíða eftir sumrinu...kannski að ég fái einhvern smjörþef af sumrinu í Hollandinu
jæja er farin að bíða eftir sumrinu...kannski að ég fái einhvern smjörþef af sumrinu í Hollandinu
Gleđilega páska
24. mars 2008 klukkan 11:40
Páskarnir mínir hafa verið einkar gleðilegir. Bíllinn minn virkar, ég var í fimm daga fríi, fór til Ísafjarðar, fór á bretti og borðaði páskaegg en náði samt í páskasteikina til mömmu og pabba í gær! Eini neikvæði punkturinn myndi vera sá að ég keypti óvart hrossakjöt í staðinn fyrir nautakjöt, sem ég hélt að ég væri að kaupa. En allir borðuðu það með "bestu" lyst, engu að síður. Þetta voru aldeilis indælir páskar og nú tekur við dagur í slökun. Svo auðvitað hversdagurinn á morgun. En styttist í afmæli næstu helgi, allt að gerast.
Hvernig voru ykkar páskar?
Hvernig voru ykkar páskar?
Sćlar
19. mars 2008 klukkan 19:31
Jæja ég verð að láta ánægju mína í ljós með þessa miklu eflingu sem er í gangi hérna á skynseminni.
Annars ég hress, með blæðandi magasár yfir falli krónunnar og krossa puttana að maður geti borgað leiguna næstu mánaðarmót. Og jú jú í þessu mikla gengisfalli, hvað gerir maður?? Bara að bregða sér yfir landamærin til þýskalands, sem er mjög skynsamt þar sem krónan hefur aldrei verið svo veik gagnvart evru. Ég borða bara kinderegg og nutella í öll mál. Það verður rosalegt. Finn mér einn þarna með góða mottu.
Ég vona að þið eigið góða páska börnin mín og farið varlega.
Ég droppa inn nokkrum myndum þegar ég kem aftur.

já skynsemin rćđur er ţađ ekki??
18. mars 2008 klukkan 21:06
jæja smá spark í rassgatið frá henni frænku minni og hér kemur færsla, verð samt að segja að þetta bloggleysi stafar af engu öðru en skynseminni, síðustu daga er ég búin að helga mig vonlausu verkefni sem ég verð að segja að hafi samt ekki endað vel, en ég barðist samt fram á síðasta dag, að lokum verðlaunaði ég mig með því að skella mér út fyrir borgarmörkin og alla leið til Akureyrar og einnig í Mývatnssveitina, á Akureyri gerði ég auðvitað allt sem Reykvíkingar gera, skellti mér á skíði, fékk mér brynjuís, fór í sund og kíkti örlítið út á lífið eftir þetta gat ég svo farið sátt í siðmenninguna þar sem skynsemin tekur við næstu daga svo ég geti nú farið að mennta mig eitthvað....
Ćj ćj ćj
16. mars 2008 klukkan 10:03
Nú er mér allri lokið. Hvíta ljóninu hefur verið fargað og nýji bíllinn minn vill ekki vinna með mér. Nei, rafgeymirinn hætti bara að hlaða sig í gær, skyndilega. Því þrátt fyrir bilaðar hurðir, púst sem haldið var uppi með snæri og fleira í þeim dúr, þá vorum ég og ljónið teymi. Ljónið vann alltaf með mér, beilaði ekki á mér þrátt fyrir háan aldur! Annað en hægt er að segja um grænu þrumuna. En lítið þýðir að sitja við tölvuna og væla, ég þarf víst að koma mér út, opna húddið og þykjast vita eitthvað um bíla.
Í gang skal hann!!!
Í gang skal hann!!!
O jćja
11. mars 2008 klukkan 20:16
Þrátt fyrir miklar yfirlýsingar af hálfu Betu og Góu, virðist lítið vera að gerast hérna á skynseminni. Fögur fyrirheit eru einfaldlega ekki nóg, maður verður líka að standa við þau. Og hvað þá?? Auðvitað tekur stelpan sig til og sleppir eins og einni færslu lausri hérna. Þýðir ekkert annað.
Hérna er allt að gerast, ég er í mikilli kreppu og naflaskoðun þessa dagana. Framtíðin er að valda mér höfuðverkjum en það er svo sem ekkert sem ég ætla eitthvað að vera að fara í dýptina með. Spurningin er hvort að vandmálið sé mest ég sjálf og ég reyni að klína þeim á aðra þætti eða hvort að það séu bara aðrir þættir. Ég sæki um skóla núna og fæ svo svar í júlí, þannig ég ætla eftir bestu getu að reyna að setja allt þetta á ís þangað til þá, þó að það sé erfitt þegar ég á í hlut. Svo ekki sé meira sagt. Ég hlakka mikið til þess að komast heim á klakann, komast burtu frá öllu skólabulli, anda að mér fersku fjallalofti og fara í road trip með betunni á nýja kagganum hennar.
Hver er næst, pant ekki.

Comeback
02. mars 2008 klukkan 20:26
Vegna harðra orða í minn garð undanfarið finn ég mig knúna til að verja mig. Þess má geta að hefði ég ekki tekið mig til og saumað saman þessa síðu, þá væri hún jú ekki til. Við verðum alltaf að muna hvaðan við komum elskurnar, það hefur allt að gera með það hvert við erum að fara. Þetta þykir mér bara hljóma nokkuð skynsamlega. Engu að síður hef ég breitt bak og samþykki það hikstalaust að forgangsröðunin mín hefur eitthvað farið forgörðum undanfarið. Skynsemin, bókstaflega og ekki, á auðvitað alltaf að vera í fyrirrúmi ;)
Ég gerði það sem Biblían kennir, býð hina kinnina og segi: Bergþóra mín, velkomin á skynsemina!
Ég gerði það sem Biblían kennir, býð hina kinnina og segi: Bergþóra mín, velkomin á skynsemina!
takk takk takk
02. mars 2008 klukkan 18:39
Jæja þar kom að því að ég fékk inngang í þennan mikla og virta klúbb skynsemin ræður, enda búin að berjast fyrir því í mörg ár að vera tekin inn.
Ég vil byrja á því að þakka hinum meðlimunum fyrir þetta mikla traust sem þið hafið sýnt mér og ég lofa að ég skuli ekki bregðast ykkur er þegar farin að hugsa minn gang....
meira verður það ekki í bili en ég lofa að vera öflugari í þessu en hún Beta ;)
þangað til næst
Bergþóra

123
01. mars 2008 klukkan 19:18
Fyrsta: Ég tók mér það bessaleyfi, eftir nokkra umhugsun, að búa til aðgang fyrir Bergþóru okkar Góu. Enda er ég orðin ansi þreytt á að vera að halda þessari síðu uppi ein. En ég er einfaldlega bara SKYNSÖMUST! Svo ég græt það ekkert.
Bergþóra er kannski ekki alveg á sama plani skynseminnar og ég og Elísabet en hún kemst nokkuð nálægt okkur engu að síður. Stúlkan er reyndar ekki á lausu, heldur trúlofuð og er það skynsamara en margt annað, engin lauslætisdrós þar á ferð.
Annað: Í msn spjalli mínu við áðurnefnda Bergþóru og Klöru fyrir nokkru síðan fékk ég þá snilldarhugmynd að við myndum halda uppá 10 ára fermingarafmæli okkar þingholtastúlkna (begga fær jafnvel að vera með, þrátt fyrir að vera ekki komin upp í tuginn) í sumar, svona þegar ég er heima og svona.
Jafnvel að klæða okkur í kjólana og platform skóna og hlusta á nokkra klassíska 8undu bekkjar hittara og borða pizzu og horfa á ace ventura og bara hafa gaman. Það væri náttúrulega illa fyndið.
Þriðja: Mér berzt enginn póstur og ég er farin að hafa af þessu þó nokkrar áhyggjur verð ég að játa. Enda á ég von á mikilvægum skjölum frá klakalandinu.