Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Uppihald

17. febrúar 2008 klukkan 19:20
Já það virðist vera þannig að ég haldi þessari annars ágætu síðu uppi. Beta er líklega orðin of upptekin í því veraldlega, komin í háa stöðu, keyrandi á bíl og græðandi peninga.
Valentínus kom og fór, ég verð að viðurkenna að ég tók ekkert sérlega eftir honum né grét það að vera ein í tilefni dagsins, ó sei sei.
Annars eru pælingar í hámarki þessa stundina og jafnvel útlit fyrir að ég fari bakvið öll gildi mín og sæki um nám í CBS, það er copenhagen business school, hljómar ekkert voðalega líkt mér en hljómar skynsamlegar en margt annað gerir þessa stundina. Fara í sama pakkann og Beta. Ég er náttúrulega mega business og hefur fólk (beta og gunnar) ekkert grundlag fyrir að kalla mig arty farty.
Ef einhver þarna úti er með uppskriftina af framtíð minni má sá hinn sami gjarna senda mér hana með hugskeytaformi. Ég læt ykkur vita hverju ég kemst að.

peace out, babies.

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit