Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

13. janúar 2008 klukkan 22:36
Ég ætla að óska öllum gleðilegs nýs árs. Og megi skynsemin eflast til muna á þessu ári, ég vil allavega meina að við vinkonurnar séum á réttri leið í lífinu.
Ég ætla að skrifa örlítið oftar inn á þessa góðu síðu á árinu 2008.
Svona í anda skynseminnar byrjaði ég á því að eyða peningum, skynsamt. Splæsti í miða til Alabama þar sem ég ætla að heimsækja Tinnulíusinn, verður gott. Ég er samt ekkert bara að heimsækja hana. Málið er eiginlega að Evrópumarkaðurinn er einfaldlega bara of lítill fyrir mig, auk þess sem ég víðsýnan og vel lesinn mann. Og hvar ættu svo sem að vera betri möguleikar á að finna hann í suðurríkjum bandaríkjanna, ég bara spyr. Þið skuluð ekkert gera ráð fyrir mér á Íslandi á næstunni.

Svona í alvöru talað þá ákvað ég eftir svona frekar gloppótt 2007 að gera mitt besta til að gera 2008 að góðu ári. Nýta þau tækifæri sem koma upp í hendurnar á mér eða reyna að kasta mér á þau sem fara á fleygiferð framhjá mér, fara með rétt hugarfar í hlutina, uppskera eins og ég sái, vera jákvæð og trúa og treysta á sjálfa mig, því að enginn annar gerir það. Ég trúi því að það sé ástæða fyrir öllu sem gerist í lífi okkar, bæði því góða og slæma og það er undir okkur sjálfum komið að gera það besta úr því góða og slæma.
Klisja.is kveður í bili.

Ég á það ekki skilið...

02. janúar 2008 klukkan 18:33
Ég er komin heim, reynslunni og nokkrum moskítóbitum ríkari. Ég fór í Vesturbæjarlaugina áðan og tók allan pakkann á þetta. Fór á bikiníi út í snjóinn eins og sannur Íslendingur, svo í heitasta pottinn, laugina og gufu. Sá föla og feita Íslendinga í pottunum, ræðandi málin meðan þeir nýttu sér nuddið. Þetta er það sem ég þekki. Mitt fólk. Það er eiginlega ógnvekjandi hvað ég er glöð að vera komin heim...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Leit