smá yfirlit
20. nóvember 2008 klukkan 10:11
Ég komst loksins hérna inn eftir margar tilraunir, ég var nánast farin að halda að hinir meðlimir skynseminnar hefðu hent mér út, sem passar bara ekki þar sem ég tel mig hafa verið með eindæmum skynsöm síðan ég skrifaði síðast þrátt fyrir að það sé ansi langt síðan. Sumarið er búið og veturinn er tekinn við, ég er komin úr sveitinni og sest aftur á skólabekk eftir lengstu pásu frá skóla sem ég hef tekið mér síðan ég var 6 ára sem var alveg heil önn.
Það eru greinilega ekki allir jafnskynsamir hér á landi eins og við í skynsemisklúbbnum þar sem landið okkar kæra er nánast farið á hausinn út af einhverjum nokkrum bjánum sem misstu sig í góðærinu. Það er á svona tímum sem við skynsama fólkið blómstrum þeir sem eru ekki með nein bílalán eða hvað þá húsnæðislán á herðum sér, þeir sem ákváðu að taka ekki erlend lán þrátt fyrir að á tímabili virtist það vera það skynsamasta í stöðunni en við fátæklingarnir hugsum greinilega lengra fram í tíman og höfum það bara gott í dag.
Það sem er samt súrt við þetta er hvað buddan tæmist fljótt og að það lítur út fyrir að það verði helmingi dýrara að reyna að fara eitthvað út í heiminn, einnig er allt í einu setið um störfin á leikskólunum þannig að það er eins gott að standa sig í þeirri vinnu sem maður hefur því í dag er víst ekki hægt að velja úr vinnum.
jæja þá er yfirlitsbloggið mitt komið og ég reyni að standa mig betur í þessu á komandi mánuðum það sem er hinsvegar framundan er menningarleg helgi, sýning, jólin, piparkökur og jólamyndir og margt fleira.
þangað til næst...

Kreppa og allt ţađ
10. september 2008 klukkan 23:29
Þessa dagana er skynsemin allsráðandi, og ekki aðeins í skynsemisklúbbnum heldur heyrir maður af því að ráðsettar fjölskyldur séu að halda að sér buddunni, að lífrænn matur og líkamsræktarstöðvar séu ekki lengur í tísku. Í stað þess að fara á grænan kost í hádeginu verður subway að duga. Og í stað þess að kaupa kort í Laugar á tilboði á 55.000 krónur borgar sig að fara á hjóli í vinnuna og brenna þannig hitaeiningum, en ekki peningum, því í leiðinni sparar maður jú bensín. Ég held ég hafi farið tvisvar út fyrir hverfið (fyrir utan vinnuna sem er nú ekki langt í burtu) á síðustu tveimur vikum. Aðeins sökum bensínkostnaðar. Ég hjólaði til vinnu eina vikuna þar til hjólinu mínu var stolið og ég sá að ekki var hægt að fá það bætt. Labbaði meira að segja tvisvar held ég. Ég hef líka komist að því að það er ágætt að sleppa því bara að borða nema þegar manni er boðið eitthvað, eða að tilefni sé til, svosem hittingur í vinahópnum og annað. Þannig sparar maður aldeilis. Jæja, nóg um væl og krepputal. Ég myndi sennilega ekki halda svona að mér nema því ég þykist vera að spara fyrir Indlandsferð. Sem verður að öllum líkindum farin fljótlega. Það heldur mér gangandi. Vinnan er leiðinleg...mér var boðin önnur, er að vinna í því. Kemur allt í ljós. Mig langar að blómstra!!!

egyptaland og fleira
29. júlí 2008 klukkan 22:30
jæja margt hefur breystst síðan síðast er búin að fara til Egyptalands og láta hafa af mér alltof mikið af peningum en í staðin fékk ég nú að prófa að kafa í fyrsta sinn, fór til Ísrael nánar tiltekið Jerúsalem þar sem ég skoðaði fæðingarstað Jesú og einnig staðinn þar sem hann var krossfestur, á leiðinni stoppuðum við líka í dauða hafinu þar sem við flutum með tærnar uppí loftið og sönkuðum að okkur salti. Í Egyptalandi fórum við svo í eyðimörkina drukkum te í tjöldum hjá fólki sem býr í eyðimörkinni, við skoðuðum líka pýramídana, lágum í sólbaði, skoðuðum egypska safnið, lágum aðeins meira í sólbaði og margt margt fleira...
núna er hinsvegar hversdagsleikinn tekinn við og ég byrjuð að vinna eins og mófó...til að borga alla reikningana eftir að hafa verið göbbuð allverulega af hinum og þessum eguptum ;)
svo mæti ég í bæinn í endan ágúst og byrja aftur í skólanum það verður kærkomið frí eftir alla þessa vinnu ;)

Já
14. júlí 2008 klukkan 12:11
Skynsemisklúbburinn er skynsamur að vanda og nýtur góðs félagsskapar og þess að vera í sumarfríi, þrátt fyrir að það rigni örlítið. Ég hef mest lítið fram að færa en hér má þó finna nokkrar myndir af skynseminni og vinum í góðu glensi.
![]() |
| sumarbland |
Surely
25. júní 2008 klukkan 23:17
Þrátt fyrir útsölu-annríki í vinnunni og uppsprengt bensínverð (þurfti að fylla bílinn fyrir 11.000 krónur í fyrradag!!!) þá get ég ekki annað en glaðst yfir heiðbláum himninum, skýjahnoðrunum, nýlökkuðum tánöglunum og opnu sandölunum. Sumarið er tíminn segja "þeir".
Eftir langan og strangan vinnudag, þreytu og takmarkaða hvíld sökum lélegra gluggatjalda fór ég í síðbúinn kvöldmat hjá Lilju vinkonu uppi í fellum með háværa rapptónlist gettósins ómandi í næsta nágrenni. Við nánari athugun komu í ljós þrír ungir piltar sem voru að taka upp tónlistarmyndband. Hvort myndbandið fer lengra en á YouTube skal ósagt látið.
Eftir dásamlega máltíð röltum við um hverfið, ég haldandi veskinu aðeins nær mér en venjulega...nei bara grín ;) King Kong hverfissjoppan og svona.
Einhver til í road trip í júlí með mér og Hildi?

Bara hć
25. júní 2008 klukkan 16:59
Jæja eins og Begga Góa nefndi hér í færslunni á undan, er stutt í hana og ferð hennar í siðmenninguna, þá er um að gera að við stúlkurnar krukkum okkur eitthvað saman og finnum upp á einhverju skemmtilegu en auðvitað verður skynsemin sett í fyrsta sæti, til dæmis væri gaman að taka eitthvað nett laugardags picknik í laugardalnum í smá bland við góða tónlist. Ojá.
Annars gengur allt sinn vanagang, vinnan er fín, börnin eru yndisleg, starfsfólkið líka, maturinn mætti samt vera betri. Verum í bandi elskurnar.

28.júní!
17. júní 2008 klukkan 21:33
jæja það er vel komin tími á skynsemisblog...
Lífið í sveitinni gengur sinn vanagang, geri voða lítið annað en að vinna en það góða við það er að vinnan mín er bara helvíti skemmtileg á milli þess sem ég kokka ofan í liðið fæ ég að skoða fugla allan daginn ég fæ líka að smakka skelfisk beint úr sjónum og meira að segja að krukka soldið í honum líka svona allavegna þegar það er ekki mikið að gera. Á sunnudaginn brunuðum við svo í flatey á alveg fljúgandi ferð, pikkuðum upp fólk þar gáfum þeim að borða og silgdum þeim á brjánslæk, heimferðin var svo skrautlega en ég tel það vera nokkuð gott að komast yfir fjörðinn á 1,5 tíma svona allavegana meðan að Baldur siglir þetta á 2,5 tíma :)
Annars panta ég hér með djamm þann 28.júní en þá ætla ég að skella mér í siðmenninguna og vonast til þess að sem flestir verði þá í partýgírnum...
það styttist óðum í Egyptalandsförina en það er aðeins tæpur mánuður í að við förum, er samt soldið smeik við að ég eigi eftir að grillast þarna það reka allavegana allir upp stór augu þegar ég segi þeim að ég sé að fara þangað í júlí en ég ætla bara að vona það besta og halda mig þá bara í sjónum ;)
jæja ég segi ekki meir nema skynsemisklúbbur og viðhengi ég heimta heimsókn í sveitina!! og gleðilegan þjóðhátíðardag!

It's been a while
16. júní 2008 klukkan 18:34
En það er alltaf jafngott og félagsskapurinn ekki verra. Þetta er vonandi bara fyrsta af mörgum svona myndum sem verða teknar í sumar, vonandi verður Begga bara með á næstu.
Hildur heim
08. júní 2008 klukkan 20:15
Framtíðin er aldeilis björt, Hildur er að koma heim í dag, og ég fer í sumarfrí í júlí. Ég sé fram á road trip á grænu þrumunni og þar sem ég er sérlega bjartsýn þessa dagana tel ég að veðrið verði frábært.
Vinur minn gifti sig í gær. Þau eru farin að týnast út þessar elskur. Á síðasta ári var það Hanna Sirrý vinkona og nú var það Tómas Davíð vinur minn sem hefur ekki verið kenndur við kvenmann í fleiri ár, jafnvel þó þær hafi margar verið skotnar í honum og ekki síst mæðurnar. Enda er hann víst algjör tengdamömmudraumur, eða svo segir nýbakaður tengdapabbinn. Það kom líka uppúr kafinu nýverið að hún móðir mín hefur haft augastað á honum og var heldur betur miður sín þegar hún hitti hann um daginn og rakst á fingurgullið. Vandræðalegt það.
En ég er meira en sátt við eiginkonuna, ég græddi einn vin í viðbót á þessu hjónabandi. Það getur maður ekki alltaf sagt í svona tilfellum.
Ég komst að því að það er hægt að fá rosalegan ís í Álfheimunum, hann er eiginlega bannaður. Svona blandaður á staðnum með kökudeigi og svoleiðis. Það er meira að segja hægt að fá tyggjóís og sykurpúðasósu, oojjjjj. Bannað, bannað.
Fjármálin eru í rugli þessa dagana, er ég ein um það? Verðbólgan fer alveg skelfilega með mig og hækkað bensínverð rænir mig geðheilsunni. Enda er þruman mikill bensínhákur, það er orðið sorglegt þegar maður sleppir heimsókn til Lilju vinkonu uppí Breiðholt því mælirinn fellur um fjórðung...því miður verður þruman því styttri kafli í lífi mínu heldur en hvíta ljónið. En ég get því miður ekki kennt verðbólgunni og bensínverðinu þarmeðtöldu um peningavandamál, enda er eyðslan hjá manni í engu samræmi við innkomuna, svona er þetta nú. Maður bara farinn að detta í kapphlaupið. Ég skal trúa ykkur fyrir því að ég keypti armband á 6.500 krónur um daginn, jiiii...
Eftir road trippið fer þruman í fréttablaðið. Ég mun sennilega markaðssetja hana betur greyið en ég gerði hér.
Gleðilegan sunnudag og megi vinnuvikan verða ykkur góð.